Svæðinu til framdráttar?
[Annað] - 30.05.2005 -
Fyrir rúmri viku síðan birtist grein á vef Víkurfrétta frá framsóknarmanninum Eysteini Jónssyni þar sem hann fór ófögrum orðum um fjárhagsstöðu bítla- og íþróttabæjarins og nefni hann m.a. nýju nafni í pólitískum tilgangi. Ekki þarf að fjölyrða um skoðun mína á þeirri grein né þeim rangfærslum sem þar var að finna. En pólitík er pólitík og í sjálfu sér eðlilegt að minnihlutaflokkar sjái aðra sýn á veruleikanum en meirihlutinn enda var greininni sem slíkri svarað á sama vetfangi - á vef Víkurfrétta.
Hitt er, það sem ég vil gera að umtalsefni hér, það er sama greinin en nú viku síðar í Morgunblaði allra landsmanna! Rétt eða ekki rétt - finnst hinum unga framsóknarmanni greinin vera sér eða bænum hans til framdráttar. Einhliða skoðun hans, sem hann á að sjálfsögðu rétt á, sé tvítekin og nú í landsmálablaði þar sem flest allir sjá aðeins eina hlið. Þar sem fólk veit ekki um þá umhverfisbreytingu sem bærinn hefur tekið. Þar sem fólk veit ekki um þau fjölmörgu atvinnutækifæri sem hér eru að skapast. Þar sem fólk fólk veit ekki um þá öflugu þjónustu sem bæjarfélagið rekur sbr. frístundarskóla, íþróttaaðstöðu, frír strætó o.s.frv. Ég sá ekkert í greininni sem hvatti fólk til að flytja til Reykjanesbæjar. Ég sá hvergi umræðuna um aukin atvinnutækifæri t.d. í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem Eysteinn er nú stjórnarformaður. Ég sá hvergi ástæðu Eysteins til að búa í Reykjanesbæ. Ég bara.... sá engan tilgang með greininni í Morgunblaðinu.
Til baka
|