Mynd: Steinþór Jónsson - Ágúst 2004. Þessi mynd var tekin út í Garðsjó á fallegu sumarkvöldi. Á sjóþotunni eru þau Jón Þór Maríusson, sem er einn aðalhvatamaður KefJet, ásamt henni Öldu sinni. Hugmyndin var að taka sólarlagsmynd af þeim en þá var ég svo heppinn að þessi höfrungur stökk upp á milli okkar en ég er eins og þau á sjóþotu.
KefJet Áhugi minn á sjóþotum vaknaði fyrir nokkrum árum og samhliða ánægju af þessum farartækjum vildi ég sjá stofnuð samtök eða klúpp í Reykjanesbæ til að auka á afþreyingu á þessu sviði á svæðinu enda gaman fyrir íbúa og gesti að fylgjast með sjóþotum í Keflavíkinni á fallegum dögum. Í dag býður Hótel Keflavík uppá þrjár sjóþotur en samtals eru um 30 sjóþotur í Reykjanesbæ. KefJet var stofnað á árinu 2004 og eru félagar með aðstöðu að Hafnargötu - bakhúsi og má sanni segja að þar sé ung og öflug samtök með bjarta framtíð. Hafa meðlimir í KefJet m.a. haft forgöngu um skemmtidagsskrá á Ljósanótt auk þess að bjóða yngri kynslóðinni í smá skemmtiferð án endurgjalds.